Drífa Snædal tjáði sig við blaðamenn í kjölfar funds Eflingar vegna mikilla hópuppsagna sem tilkynnt var um í gær. Fréttablaðið greinir frá þessu.
„Ég hélt ekki að ég ætti eftir að lifa þann dag í verkalýðshreyfingunni að formaður verkalýðsfélags myndi standa að tilefnislausum hópuppsögnum. Þetta er eitthvað sem verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir í áratugi að gerist ekki. Þarna er verið að vega að afkomu og atvinnuöryggi fólks og við hljótum að fordæma það.“ sagði Drífa.
Spurð út í hvort fregnirnar kæmu sér í opna skjöldu sagði hún: „Já þær komu mér á óvart. Ég held þær hafi komið öllum á óvart.“
Hún sagðist hafa rætt við starfsfólk Eflingar og fékk staðfest að hópuppsagnir væru framundan, en gat þó ekki staðfest að öllu starfsfólki Eflingar yrði sagt upp. Hún hafði þó heyrt að svo væri.
„Ég fordæmi þetta. Mér finnst þetta bara agalegt, að verkalýðshreyfingin standi fyrir svona hópuppsögnum. Þetta er eitthvað sem er í andsöðu við það sem við stöndum fyrir,“
„Mér finnst það þyngra en tárum taki að átta stjórnarmenn hafi tekið þessa ákvörðun.“ sagði Drífa sem sagðist þó ekki hafa talað við Sólveigu Önnu, formann Eflingar vegna málsins.