Dregið hefur úr spennu

Hagfræðideild Landsbanka Íslands skrifar í Hagsjá um fasteignamarkaðinn.

Að undanförnu hefur verið nokkur umræða um hvort tekið sé að hægja á fasteignamarkaði. Bæði hvað umfang varðar og einnig verð. Fasteignasalar telja sig sjá að dregið hefur úr spennu á markaðnum.

Fasteignamarkaðurinn er sveiflukenndur. Sé litið á fjölda viðskipta síðustu mánuði má greina að sú þróun er heldur niður á við. Einkum hvað varðar íbúðir í fjölbýli.

Allt frá árinu 2009 fram til ársins 2016 var samfelld aukning viðskipta á fasteignamarkaði í Reykjavík. Hins vegar er meðalfjöldi viðskipta fyrstu fimm mánuði þessa árs töluvert minni en meðaltal ársins 2016. Þessi þróun endurspeglar þann framboðsskort sem ríkt hefur á fasteignamarkaðnum upp á síðkastið.

rtá

Nánar www.landsbankinn.is