Knattspyrnugoðsögnin Eiður Smári Guðjohnsen segir í samtali við umsjármenn þáttarins 433 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut að draumurinn sé vissulega sá að klára fótboltaferilinn með íslenska landsliðinu á EM í fótbolta á næsta ári. Hann eigi enn nóg eftir og ef þetta gangi eftir sé það nokkurn veginn eins og að geta skrifað söguna sjálfur.
En Eiður er æðrulaus í viðtalinu, ekkert sé sjálfgefið í þessu sambandi: "Ef ég finn að ég get komið inn í þetta verkefni 100% eins og ég hef getað hingað til þá geri ég það að sjálfsögðu," segir hann í sjónvarpsþættinum.
Knattspyrnuþátturinn 433 verður framvegis á dagskrá Hringbrautar á miðvikudagskvöldum og honum er sem fyrr ekkert knattspyrnutengt óviðkomandi.
Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is eða klippur úr þættinum hér neðar á forsíðu vefjarins.