Margir eldri borgarar eru í miklum vandræðum eftir að hafa fjárfest í íbúðum í Árskógum í Breiðholti. Gamla fólkið hafi selt íbúðir sem það átti fyrir og fjárfest fyrir nokkru í hinum nýju íbúðum sem þá voru í smíðum. En tilhlökkunin breyttist í vonbrigði og sorg í vikunni. Þá kom í ljós að gamla fólkið þyrfti að greiða allt að sjö milljónum krónum meira en samið var um í fyrstu. Frá þessu er greint á RÚV.
Lögmaður félags eldri borgara hefur mótmælt þessu og segir að ekki sé hægt að krefjast þess að greiða mun hærra verð en upphaflega var samið um. En ástæðuna fyrir þessari gríðarlega miklu hækkun, sem hefur orðið þess valdandi að sumir þurfa nú að hætta við, jafnvel eftir að hafa selt sínar íbúðir, má rekja til mikillar framúrkeyrslu hjá félaginu. Hún varð ljós núna á síðustu vikum.
Kaupendur að íbúðunum sem Félag eldri borgara reisti fengu bréf í gær þar sem þeim voru birtir afarkostir. Annað hvort að samþykkja milljónahækkun á kaupverði eða hætta við. Ástæðan var að framkvæmdir höfðu farið fram úr áætlun og verktakinn neitaði að afhenda lyklana.
Um 68 íbúðir er að ræða og hafa þær flestar verið seldar. Fréttastofa ræddi við nokkra sem voru að flytja inn og voru sumir sárir. Sigrún Sighvatsdóttir sagði í samtali við RÚV: „Þetta var talsvert áfall og ekki það sem ég bjóst við. Þessir kostir, annað hvort að hætta við eða greiða. Þetta eru harðir kostir.“ Hún hafði áður selt sína íbúð og búið undanfarið í sumarbústað. Hún hafði engan annan kost en að taka á sig þessa hækkun sem var sjö milljónir króna. „Það var enginn annar kostur í boði í raun og veru.“
Þá segir á RÚV að sumir sem hafi ætlað að samið um að kaupa íbúð og greitt inn á séu í miklum vandræðum. Þá séu aðrir sem ekki geta keypt íbúðina lengur, og eru búnir að losa sig við fyrra húsnæði. Draumurinn hafi í raun breyst í martröð.
Sigríður Snæbjörnsdóttir, varaformaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni segir að félagið leiti leiða til að lækka verð og hafi rætt við Reykjavíkurborg en hún segir borgina hafa skilað lóðunum seint. Aðspurð hvort hún telji samningana standast lög og að félag eldri borgara geti verið bótaskylt svaraði hún:
„Okkur líður auðvitað eins og við höfum ekki alveg staðið okkur þarna en það verður bara að koma í ljós. Það er alveg skýrt að Félag eldri borgara er endanlega ábyrgt fyrir þessu.“