Katrín Jakobsdóttir hefur átt ýmis tækifæri í stjórnmálum en ekki nýtt sér neitt þeirra. VG virðast svo staðráðnir í að halda áru sinni hreinni að ekki kemur til greina að vinna með X-D. Í slíku samstarfi felst vissulega talsverð áhætta. Staðreyndin er sú að þriðja kjörtímabilið í röð verða VG dæmdir til áhrifaleysis utan ríkisstjórnar. Þessi sjónarmið og önnur viðrar Egill Helgason í vel unnum dálki sínum á www.eyjan.pressan.is
Ákvarðanatökufælni Katríanr Jakobsdóttur býður borgaralegum vinstrimönnum innan VG tækifæri til að skora hana á hólm og velgja undir uggum baklandi hennar í VG 101 Rey. Teningunum er kastað. Sóley Tómasdóttir býður borgarlegum vinstri öflum innna VG í Reykjavík upp í valkost. Draumur VG breyttist í martöð því kjósendur snéru baki við flokknum undir forystu Katrínar Jakobsdóttur. Hún virðist sannfærð um að vandi VG sé ímyndun ein en ekki hugmyndafræðilegur. En slakt gengi VG er áfellisdómur yfir forystu VG og kokhreysti VG 101 Rey. VG eru ekki lengur vettvangur málefnalegrar nýsköpunar á vinstri væng íslenskra stjórnmála.