Sjöfn Þórðar heimsækir Akranes og nágrenni heim þar sem íbúafjölgun hefur verið hröð á undanförnum árum og nú er íbúafjöldinn að nálgast áttaþúsund manns. Mikil gróska hefur verið í bænum undanfarin ár og samfélagið laðar til sín ungt fjölskyldufólk og ekki síst fólk úr höfuðborginni. Byggðin hefur verið að þéttast og margar nýjar og glæsilegar fasteignir hafa risið og prýða bæjarstæðið sem er orðið eftirsóknarverður staður að búa á. Sjöfn hittir mæðgurnar Soffíu Sóleyju Magnúsdóttur og Ragnheiði Rún Gísladóttur sem báðar eru fasteignarsalar og reka saman Fasteignamiðlun Vesturlands sem oftast er kölluð FASTVEST og spjallar við þær um þróunina í bæjarfélaginu, hvernig bæjarbragur hefur verið að styrkjast og hversu fjölbreytt afþreying er til staðar fyrir alla fjölskylduna. Báðar þekkja þær vel hvernig er að ala upp börn á Akranesi og hversu þægilegt að hafa allt í nánd fyrir fjölskylduna. Einnig eru þær með puttann á púlsinum þegar kemur að því að finna réttu eignina á svæðinu og þekkja ný og spennandi byggingarsvæði þar sem útsýnið er stórfenglegt og náttúran skartar sínu fegursta við sjóinn. Meira um þetta í þættinum í kvöld.
Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30 og jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.