Draumabíllinn á hringbraut

Kíkt í skúrinn verður á dagskrá Hringbrautar í kvöld. Jói Bachmann umsjónarmaður hins vinsæla bílaþáttar skoðar svokallaðan Rat-road hjá Atla Má Jóhannsyni. Hann átti þann draum að eignast og búa til Rat-road sem varð að vera Chevrolet pickup árgerð 1956!

Atli Már fór víða til að finna draumabílinn og varð loks ágengt. Hann keypti bílinn og gerði úr honum flottan og sérstakan Rat-road sem hann notar daglega bæði í vinnu og við sérstök tilefni. \"Þess má geta að konan hans hefur ekki síður áhuga á þessu en Atli Már,\" segir Jói Bachmann.

Einnig verður í Kíkt í skúrinn skoðaður Ford Taunus 1965 í eigu Gunnars B Gunnarssonar eða Gunna síma eins og hann er kallaður. \"Gunni ólst upp í svona bíl sem faðir hans átti,\" segir Jói um þáttinn í kvöld og bætir við að minningar Gunnars séu góðar þar um. \"Svo sá hann einn á Akureyri síðar, ákvað að kaupa hann og gerði hann upp með leynd fyrir systkinum sínum. Kláraði svo bílinn fyrir árlega ferð systkinanna í kirkjugarðinn.\"

 þættinum í kvöld kemur fram að systkini Gunnars urðu mjög hissa að sjá bílinn í sama lit og bíllinn sem þau minntust úr bernsku.

\"Glæsileg uppgerð, flottur bíll og flott saga,\" segir Jói Bachmann.