Draugar á heiðum og ímynd íslands

Þátturinn Ferðalagið í kvöld er mikið uppí á fjöllum og sögurnar frábærar. Einnig er tekin staðan á opinberri markaðssetningu Íslands og rætt við ungan hugsjónamann sem fór í heimsreisu og lét gott af sér leiða fyrir börn hér heima með mjög frumlegum hætti.

Linda Blöndal og Sigmundur Ernir ræða við Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóra Íslandsstofu um markaðssetningu á Íslandi þegar ferðamannastraumurinn eykst stöðugt til landsins.

Benedikt Benediktsson er ungur ævintýramaður sem fór í heimsreisu í fimm mánuði í byrjun árs. Hann var með  merkilegt hliðarverkefni í ferðalaginu sem hann nefndi #smilewithme. Benedikt tók myndir þar sem hann hélt í höndina á fólki frá landinu sem hann var staddur í og setti myndirnar á Instagram. Nú eru myndirnar komnar í bók og fer ágóðinn af sölunni til tómstundastarfs innflytjendabarna í samstarfi við Rauða krossinn. 

Reynir Traustason tók skrefið uppúr sófanum fyrir mörgum árum og gerðist fjallageit. Hann segir frá nýrri bók sinni Fólk á fjöllum.

Einar Skúlason, gekk póstmannaleiðina svonefndu í október síðastliðnum. Hann fór þjóðleiðina frá Reykjavík til Ísafjarðar, yfir skörð, heiðar og annað fjalllendi. Heildarvegalengdin er um 400 kílómetrar. Einar vildi með þessu heiðra minningu landpóstanna. Hann þræddi þjóðleiðir og neitar ekki að hafa orðið var við afurgengna póstmenn. Hér er brot úr viðtalinu við Einar þar sem hann talar um póstmennina forðum alda: