Drápi palestínumanns fagnað á myndbandi

Birt hefur verið myndband sem virðist sýna þegar ísraelsk leyniskytta skýtur niður palestínumann sem sýnist óvopnaður og standa kyrr við landamærin á Gaza svæðinu. Mótmælin þar hafa staðið yfir undanfarnar tvær vikur.

Í myndbandinu heyrist að því er fagnað þegar Palestínumaðurinn fellur.

Ísraelsher segist hafa atvikið til rannsóknar. Ísraelskir hermenn hafa skotið 31 palestínumann til bana síðan mótmælin hófust og sært meira en 1.000.

Liz Throssell, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, fordæmdi drápin sérstaklega í gær, en bæði Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafa kallað eftir sjálfstæðum rannsóknum á drápunum.

Með mótmælunum er þess minnst að 70 ár eru frá því að 700 þúsund Palestínumenn voru hraktir frá heimilum sínum og landi við stofnun Ísraels 1948.

Í mótmælunum á föstudag var fréttaljósmyndarinn Yasser Murtaja skotinn til bana þar sem hann stóð 350 metra frá landamæragirðingu.

Myndbandið má sjá hér á vefsíðu The Guardian.