Dramatík

Flest allt sem viðkemur stjórnaruppnáminu er dramatískt. Eins persónulegt málefni hefur aldrei fyrr haft þvílík áhrif á valdhafa landsins. Stjórnarsamstarfinu er slitið um miðja nótt og án aðdraganda. Þetta var sprengja.

Það er ýmislegt nýtt af nálinni hér: Stjórnmálamenn tala margir um prinsipp og mikið vægi þeirra. Siðferðisleg vitund er raunverulega farin að hafa áhrif á valdasæknina sem hefur ávallt einkennt íslensk stjórnmál. Í það minnsta talar Björt framtíð um að trúnaðarbresturinn sé af siðferðilegum toga. 

Og talandi um áhrif. Nú stíga kvenréttindakonur- og karlar fram og segja stjórnarslitin hafa orðið vegna baráttu feminista undanfarið. Kvenréttindafélagið skrifar meðal annars:

Tímamót áttu sér stað í íslensku samfélagi í gærkvöldi þegar ríkisstjórn landsins féll, ekki vegna peninga, ekki vegna pólitísks ágreinings atvinnustjórnmálamanna, heldur vegna þess að konur höfðu hátt. Fólk hafði hátt. Fólk hafði hátt um ofbeldi sem konur og börn voru beitt. Fólk hafði hátt þegar dæmdir ofbeldismenn bönkuðu á dyr hjá vinum sínum til að biðja um greiða, til að leita samtryggingarinnar”.

Þessi tilkynning á vef Alþingis talar sínu máli. Það féll sprengja.

 \"\"