Ýmsar rannsóknir fræðimanna á áhrifum sem orðið hafa af Héðinsfjarðargöngum hafa verið kynntar. Andrea Hjálmsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, er meðal rannsakenda og í félagi við Atla Hafþórsson hefur hún birt rannsókn í ritinu Íslenska þjóðfélagið sem sýnir að göngin hafi heilt yfir haft jákvæð áhrif í átt að auknu jafnrétti kynjanna.
Segir í rannsókninni að samgöngubætur geti ýtt undir hefðbundin kynhlutverk, einkum vegna þess að kynin noti samgöngukerfið á ólíkan hátt. Í kjölfar samgöngubóta sé líklegt að atvinnusvæði karla stækk meira en kvenna þar sem þær séu líklegri til að skipuleggja líf sitt í nágrenni við heimilið og skóla barnanna.
Á föstudag voru fimm ár liðin frá opnun Héðinsfjarðarganga sem tengja byggðarlögin Ólafsfjörð og Siglufjörð í hinu sameinaða sveitarfélagi Fjallabyggð.
„Eftir opnun ganganna juku konur talsvert ferðatíma sinn og kynjamunur minnkaði því. Þá eru ákveðnar vísbendingar um jafnari verkaskiptingu á heimilum eftir opnun Héðinsfjarðarganganna. Fyrstu vísbendingar um þróun samfélagsins í Fjallabyggð út frá kynjafræðilegu sjónarhorni gefa því til kynna að Héðinsfjarðargöngin hafi heldur dregið úr vægi hefðbundinna kynhlutverka,“ segir í rannsókn Andreu og Atla.