Draga 156 af 237 uppsögnum til baka

Airport Associates sem veitir flugafgreiðsluþjónustu á Keflavíkurflugvelli hefur nú afturkallað uppsagnir 156 starfsmanna af þeim 237 sem sagt var upp í lok nóvember á síðasta ári. Þetta staðfestir Sigþór Kristinn Skúlason í samtali við Vísi.

Uppsagnirnar voru hluti af aðgerðum fyrirtækisins til að takast á við erfiðleika í rekstri flugfélagsins WOW air. Fyrir uppsagnirnar störfuðu um 500 manns hjá Airport Associates og tóku þær til flestra deilda fyrirtækisins: hlaðdeildar, farþegaþjónustu, hleðslueftirlits, frakt og ræsti- og öryggisdeildar.

Nánar

http://www.visir.is/g/2019190129185