Dr. haraldur segir áætlanir borgaryfirvalda um fjölgun notenda almenningssamgangna byggjast á óskhyggju

Dr. Haraldur Sigþórsson umferðarverkfræðingur segir áætlanir borgaryfirvalda um fjölgun notenda almenningssamgangna byggjast á óskhyggju og muni kalla á gríðarlega þéttingu byggðar næst stofnbrautum sem eigi eftir að reynast mjög kostnaðarsöm.

Dr. Haraldur er gestur Björns Jóns Bragasonar í fréttaskýringarþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, en hann segir alltof lítið hafa verið um framkvæmdir í umferðinni undanfarin ár og það sé skýringin á þeim miklu töfum sem almenningur glímir nú við.

Ýmsar stórar framkvæmdir hafi verið teknar út af skipulagi, eins og til dæmis mislæg gatnamót á Miklubraut. Dr. Haraldur kom að hönnun þessara umferðarmannvirkja fyrir tuttugu til þrjátíu árum og segir að vel megi dusta rykið af tillögunum, en útlitsteikningar nokkurrra þeirra má sjá hér að neðan.

\"\"

\"\"

\"\"