Dóttir laxness blæs út á hringbraut

Það er töluð almennileg íslenska í Mannamáli kvöld, en gestur þáttarins að þessu sinni er kvikmyndaleikstjórinn Guðný Halldórsdóttir sem segir á einlægan og persónulegan hátt frá uppeldi sínu í ranni nóbelsskáldsins á Gljúfrasteini, hvernig hann lék sér við þær systur - og hvernig stjórnvöld njósnuðu um hann á þeim árum þegar Guðný var unglingur.


Guðný talar einnig af hispursleysi um veikindi sín sem hún þjáðist af í á þriðja ár áður en í ljós kom að þar var krabbamein í ristli að ræða. Hún segir spítalakerfið ónýtt eftir ilka meðferð hægri manna á því; það líkist stríðsástandinu í Sýrlandi að vera sjúklingur á helsta spítala landsmanna nú um stundir, slíkur sé aðbúnaður; í hennar tilviki hafi læknirinn ekki einu sinni fundið afdrep til að setjast niður með henni til að segja henni frá því að hún hefði greinst með meinið.


Þátturinn er vægast sagt óvenjulega hreinskilinn að þessu sinni, enda af nógu að taka þegar Duna, eins og hún er kölluð frá því þýsk vinnukona var á Gljúfrasteini, er sest í stólinn gegnt Sigmundi Erni.


Þátturinn er frumsýndur klukkan 20:00 í kvöld. Horfðu á klippur úr þættinum hér: