Dorrit: tvö aflandsfélög - 5 svissneskir

Forsetafrúin Dorrit Moussaieff hefur tengst minnst fimm bankareikningum í Sviss í gegnum fjölskyldu sína og að minnsta kosti tveimur aflandsfélögum, samkvæmt gögnum sem uppljóstrarar létu Le Monde, Süddeutshe Zeitung og ICIJ í té; lekar sem kallast Swiss Leaksog Panama Papers.

Frá þessu greinir Reykjavík Medía nú síðdegis.

Reykjavík Medía rifjar upp af þessu tilefni frægt sjónvarpsviðtal Ólafs Ragnars nýverið:

„Átt þú einhverjar aflandseignir?“ spurði Christiane Amanpour hjá CNN Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í viðtali 22. apríl síðastliðinn. Tilefnið var óvænt ákvörðun hans að bjóða sig fram til forseta sjötta sinn. „Á eiginkona þín aflandsreikninga? Er eitthvað sem á eftir að uppgötvast um þig og þína fjölskyldu?“

„Nei, nei, nei, nei, nei,“ sagði Ólafur Ragnar. „Það mun ekki verða raunin.“

Samkvæmt Reykjavík Medía sýna gögnin engin lögbrot Dorritar en vekja upp spurningar um hvort forsetafrú Íslands hafi hagnast á aflandsviðskiptum foreldra hennar og hvort gerð hafi verið grein fyrir eignum hennar.

Einnig kemur fram að Dorrit vildi ekki svara spurningum frá ICIJ um hvort hún tengdist þessum félögum í dag – Jaywick eða Moussaieff haro Trust eða nokkrum öðrum félögum fjölskyldunnar. Í yfirlýsingu sagði hún að viðskipti sín hefðu alltaf verið í samræmi við lög og að þau væru einkamál.

\"Í yfirlýsingu sagði hún að fjárhagur síns og Ólafs Ragnars væri og hefði alltaf verið aðskilinn. Örnólfur Thorsson forsetaritari sagði í skriflegu svari til Suddeutsche Zeitung  að forsetinn hefði enga vitneskju um félögin og að hann hefði aldrei heyrt um þau. Þá sagði Örnólfur að forsetinn hefði aldrei haft upplýsingar um aðra meðlimi Moussaieff fjölskyldunnar.

Forsetinn segir svo sjálfur í öðru skriflegu svari til ICIJ að Dorrit eigi engar eignir á Íslandi og að hún hafi aldrei veitt fjármagni í kosningabaráttu sínar, né annarra stjórnmálamanna eða flokka hér á landi. Hann leggur áherslu á að hafa ekki átt í viðskiptasambandi við Moussaieff-fjölskylduna.\"