Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri Búseta á Akureyri, telur að Dorrit, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar forseta hafi svindlað sér inn á íslenska þjóð.
Um þetta hefur Benedikt ritað pistil.
Hann skrifar að Dorrit skuldi íslensku þjóðinni einlæga afsökunarbeiðni. Hún hafi ferðast á fyrsta farrými þjóðarinnar og sýnilega \"svindlað sér inn á þjóðina\". Þá hafi hún notið sviðsljóssins og forgangspassa. Dorrit virðist nýta sér \"\"AFLANDSREGLUR\" BRESKRA STJÓRNVALDA þannig að hún borgar hvergi skatt til réttra eða fullra skila.\"
Benedikt er þungorður í niðurlagi pistils síns þar sem hann ávarðar Dorrit: \"Hafðu skömm fyrir -- og sýndu örlitla sómakennd með því að biðjast afsökunar og leiðrétta með því að greiða íslenska skatta og skattsektir til að jafna undanskotin síðustu a.m.k fjögur ár.\"
Dorrit skammist sín og greiði skatt
Fleiri fréttir
Nýjast