Dorrit girntist hatt konu kvöldsins

Sjónvarpskonan Sirrý bauð í gærkvöld áhorfendum Hringbrautar og leikaranum Björgvini Franz Gíslasyni inn á mjög fallegt heimili litríkrar konu í þættinum ,,Bankað upp á\". Þátturinn verður endursýndur í dag auk þess sem hægt verður að horfa á hann síðar á vefnum hringbraut.is.

Þegar konan flutti inn í risið í húsinu bjuggu tuttugu og þrjár manneskjur bara í risinu. Nú á konan og maður hennar allt húsið. Sjón er sögu ríkari.

Fata-, hatta- og skóherbergi konunnar er eins og konfekt fyrir augað. Hvaða kona á alla þessa hatta?   Hún á m.a. kjól sem forsetafrúin Dorrit vildi eignast.

Konan sem spurt er um er landsmönnum kunn fyrir huggulegheit. En hver er konan sem býr með manni sínum inn á þessu hlýja heimili í miðborginni?

\"Bankað upp á” á þriðjudögum kl. 21:30 og endursýndur 23:30 og alltaf á hringbraut.is.