Dorrit búin að láta klóna sám! sjáðu myndina: „heilbrigður hamingjusamur og nærist vel“

Dorrit hefur staðfest að búið sé að klóna Sám, gamla hund hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar, en Sámur eldri drapst 11 ára gamall.

Frétt Morgunblaðsins fyrr á árinu um fyrirætlanir hennar um að klóna heimilishundinn vakti mikla athygli og ekki leyst öllum vel á þær fyrirætlanir. Þar sagði að slík klónun kostaði minnst sex milljónir króna.

Fréttablaðið greinir frá því nú í kvöld að nýi Sámur sé kominn á heimili Dorritar. Hún birti mynd af hvolpinum á Instagram. Í september greindi Dorrit frá því að ferlið væri hafið. Dorrit var afar sorgmædd þegar Sámur eldri féll frá og leitaði því út fyrir landsteinana til að klóna hundinn. Dorrit segir í færslunni:  

„Samson er kominn er 750 grömm heilbrigður hamingjusamur og nærist vel.“

\"\"

\"\"