Dóra Björt um van­hugs­að­an hjól­a­stíg: „Ég þarf sí­fellt að lag­fær­a og pota í svon­a hlut­i“

Miklar um­ræður spunnust á Twitter ný­lega er blaða­maðurinn Arnar Þór Ingólfs­son birti mynd af glæ­nýjum hjóla­stíg hjá Borgar­túni þar sem búið er að planta um­ferðar­skilti á miðjan stíginn.

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í Reykja­vík, lagði orð í belg og „létti að­eins á hjartanu“ eins og hún orðar það.

Twitter/Skjáskot

„Það eru svona van­hugsaðir hlutir - sem vantar upp á við fram­kvæmd okkar annars metnaðar­fullu og grænu RVK­stefnu - sem fylla mína daga við undir­búning funda skipu­lags- og sam­göngu­ráðs. Ég þarf sí­fellt að lag­færa og pota í svona hluti,“ skrifar Dóra Björt á Twitter.

Að sögn Dóru vantar skýran ramma í kringum borgar­hönnun sem út­skýrir í smá­at­riðum hvernig ráð­stafa skuli borgar­landi og skipu­leggja það út frá for­sendum bæði gangandi og hjólandi og nefnir ýmis dæmi um hvað mætti betur fara.

Twitter/Skjáskot

Þá furðar hún sig á því að kjörnir full­trúar sem eru ekki endi­lega sér­fræðingar þurfi sí­fellt að grípa inn í svona mál.

„Það er fá­rán­legt að þetta sé svona hipsums­haps og að kjörnir full­trúir sem koma að málum seint og um síðir og eru ekki endi­lega sér­fræðingar í skipu­lagi eigi að þurfa að grípa svona (eins og er sí­fellt staðan). Þess vegna er stefna Pírata að skapa svona skýran ramma,“ skrifar Dóra.

Hún bætir því að lokum við að það hafi ekki verið stemning fyrir slíku þótt hún hafi talað mikið fyrir því og vilji sjá það skrifað inn í meiri­hluta­sátt­mála.