Dóra björt: „það er því kominn tími á þetta” - vesturbæingar bjóða konurnar velkomnar

Borgarráð tilkynnti í gær að Reykjavíkurborg samþykkt kaup á Hringbraut 79 í Vesturbæ Reykjavíkur fyrir 230 milljónir króna. Í húsinu verður íbúðakjarni fyrir konur með geð- og fíknivanda. Húsið samanstendur af tveimur íbúðum ásamt tvöföldum bílskúr. Íbúðirnar skiptast í 7 íbúðaeiningar, sem allar eru með sér eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Með húsinu fylgir húsbúnaður. Húsið er samtals 395,3 fermetrar að stærð. Áætlað er að starfsemi hefjist í húsinu síðla næsta haust. 

Kaupin eru liður í samþykki borgarráðs í janúar 2019 um forgangsröðun á uppbyggingu og eða kaupum á húsnæði fyrir íbúðakjarna fyrir konur með geðfötlun og fjölþættan vanda. Hlutverk kjarnans er að veita þeim aðstoð til að eiga sjálfstætt og innihaldsríkt líf innan og utan heimils með því að mæta þörfum þeirra á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt með áherslu á sjálfstætt líf og valdeflandi stuðning. 

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, segir eitt af helstu áhersluatriðum Pírata fyrir borgarstjórnarkosningarnar að veita þessum hópi viðeigandi þjónustu en hingað til hafa bara verið til úrræði eingöngu fyrir karla eða kynjablönduð úrræði.

„Það er því kominn tími á þetta því konur nýta sér kynjablönduðu úrræðin í minna mæli, meðal annars því þær upplifa sig stundum ekki öruggar og hafa jafnvel sögu áfalla. Þetta skiptir máli fyrir þær konur,” segir Dóra Björt.

Í Facebook hópnum Vesturbærinn sköpuðust miklar umræður um komu íbúðakjarnans í Vesturbæinn. Buðu langflestir sem tóku þátt í umræðunum þær velkomnar í hverfið. Eingöngu nokkrir segjast hafa efasemdir um staðsetningu íbúðakjarnans ásamt því að gagnrýna kaupverðið á húsinu.