Dóra björt: „sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki standa fyrir neitt annað en tilfinningalegt uppnám yfir ímynduðum ofsóknum“

„Jæja, þá eru Sjálfstæðismenn að leggja upp í enn eitt menningarstríðið. Í þetta sinn er það gegn auknu vali á grænmeti og ávöxtum í mötuneytum borgarinnar. Þetta nær ekki nokkurri átt lengur. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki standa fyrir neitt annað en tilfinningalegt uppnám yfir ímynduðum ofsóknum.“

Þannig hefst pistill Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, oddvita Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur, sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag. Tilefnið er umræða sem hefur skapast í kjölfar þess að RÚV birti viðtal við borgarfulltrúann Líf Magneudóttur og Benjamín Sigurgeirsson, formann Samtaka grænkera á Íslandi, þar sem þau greindu frá hugmyndum um að draga úr eða hætta alfarið að bjóða upp á kjöt í grunnskólum borgarinnar til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum. 

Á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt þessar hugmyndir eru Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Dóra Björt segir: „Ef það eru ekki mötuneyti starfsmanna sem eru fyrir þeim þá eru það reiðhjól, mathallir eða borgarlína. Alltaf eru skilaboðin sú að lífsgæði hefðbundinna Sjálfstæðismanna standi ógn af menningarmarxistunum í borgarmeirihlutanum. Agalega er þetta kjánalegt alltaf og ófrumlegt.“

„Eyþór veit alveg sjálfur að það stendur ekkert til að troða veganisma ofan í kokið á einum né neinum,“ heldur hún áfram. „Honum er bara alveg sama hvað er rétt og hvað er rangt og stekkur eins og alltaf á tækifæri til að skruma.“

Dóra Björt bendir á að matarstefna Reykjavíkurborgar hafi verið samþykkt af öllum flokkum. „Markmið hennar er hollur og góður matur á vegum borgarinnar. Þegar kemur að mötuneytum er ramminn skýr: „Notaður er grunnmatseðill til sex vikna, þar sem meðal annars kemur fram að fiskur skuli vera í boði tvisvar í viku, kjöt einu sinni eða tvisvar í viku en grænmeti, ávextir og mjólk eru í boði hvern dag. Lagst er gegn sykruðum súpum og unnum kjötvörum.““

Stríð gegn vitrænni umræðu

Dóra Björt er orðin þreytt á málflutningi Sjálfstæðismanna, sem henni þykir einkennast af því að vera á móti bara til þess að vera á móti. Hún segir:

„Það er ekki stríð gegn einkabílnum að öðrum sé boðið að hjóla og taka strætó. Það er ekki stríð gegn veitingahúsum að starfsfólkið okkar fái aðgang að mötuneytum og það er ekki stríð gegn kjötætum að bjóða upp á ávexti og grænmeti í skólum barna.“

„Sé stríð í gangi þá er það gegn vitrænni umræðu þegar oddviti Sjálfstæðisflokksins finnur hjá sér þörf til að klæða sig í bol merktum kjöti og þingmaður flokksins ber aukið val í mötuneytum skóla- og frístundasviðs saman við Austur-Berlín. Báðum er bent á að í borginni eru frábær og ódýr bókasöfn þar sem sækja má sér þekkingu. Þar vinnur yndislegt starfsfólk sem hjálpar fróðleiksfúsum. Þeir félagar Páll og Eyþór hafa enga afsökun fyrir þessari vitleysu,“ segir Dóra Björt að lokum.