Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, hefur ljóstrað upp um áður óþekkta ást á lúpínu. Lúpína er umdeild planta í íslenskri náttúru. Finnst mörgum lúpínan vera skaðvaldur en öðrum finnst hún frábær. Dóra Björt er í seinni hópnum:
„Lúpínan er harðgert blóm, landnemi sem skapar gróðursæld á ólífvænlegum svæðum. Litrík og upplífgandi en stundum óréttilega kölluð pest og plága. Mitt uppáhaldsblóm.“
Dóra Björt fór í blómaleiðangur með kærastanum, Sævari Ólafssyni. „Ég ELSKA lúpínur og hef stundum velt fyrir mér hvernig það sé að vera svona ullarvafið heilbrigt ungmenni í prjónablaðinu Ýr.“
Smellti hann nokkrum myndum af Dóru umvafin lúpínu: