Dönskum krökkum ráðlagt frá íslandsför

Dönsk­um ung­ling­um var ráðlagt af lög­reglu að hætta við Íslands­för nú í apríl eft­ir að ís­lensk­ir jafn­aldr­ar þeirra höfðu haft í frammi hót­an­ir í þeirra garð að því fram kemur í Frétta­blaðinu í dag.

Þar er haft eft­ir skóla­stjóra Ing­unn­ar­skóla að unnið hafi verið með þeim drengj­um sem báru ábyrgð á hót­un­un­um. Sam­skipt­in eru sögð hafa farið yfir strikið.

Í frétt blaðsins segir ennfremur að for­eldr­um grunn­skóla­barna í heima­bæ barn­anna, Skive, hafi af lög­reglu verið ráðið frá því að senda þau til Íslands í apríl eins og til hefði staðið þar sem börn­in hefðu fengið hót­an­ir í skila­boðum frá ís­lensk­um nem­end­um á Face­book.

Fram kem­ur að ís­lenski hóp­ur­inn hafi farið út til þess danska í nóv­em­ber og í vor stóð til að Dan­irn­ir myndu end­ur­gjalda heim­sókn­ina. Haft er eft­ir skóla­stjóra Ing­unn­ar­skóla að þeir sem höfðu uppi hót­an­irn­ar hafi ekki verið í hópn­um sem fór utan.