Frá lokum Kalda stríðsins hefur Danmörk fylgt Bandaríkjunum að málum og má segja að dönsk utanríkisstefna sé sú að fylgja að mestu eða öllu leiti þeirri stefnu sem bandarísk utanríkisstefna hefur mótað. Ræða forsætisráðherra Danmerkur í gær á þjóðhátíðardegi Danmerkur kann að boða danska u-beygju því danski forsætisráðherrann gagnrýndi harðlega ákvörðun Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna um að segja Bandaríkin frá Parísarsamkomulaginu um loftslagsmál.
Danmörk metur stöðu landsins líkast til út frá stefnu Bandaríkjanna um breyta áherslu sem liggur í \"Ameríka fyrst!\" slagorði forseta Bandaríkjanna og áformum Stóra-Bretlands um útgöngu úr Evrópusambandinu. Danmörk hefur í hartnær áttatíu ár verið náið bandalagsríki Bandaríkjanna og Stóra-Bretlands en Danir þurfa nú í ríkari mæli en áður að horfa til Frakklands og Þýskalands um náið samstarf í utanríkismálum og varnarmálum. Lítið ríki eins og Danmörk þarf bandalag við stærri ríki til að tryggja hagsmunu sína og öryggi. Dragi Donald J Trump forseta Bandaríkin út úr heimsskipulaginu sem til varð árið 1945 sé þörf á danskri u-beygju.
rtá
Nánar www.dr.dk