Rudy Giuliani upplýsti í gærkvöldi að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefði endurgreitt Michael Cohen einkalögmanni sínum þá 130 þúsund dali sem lögmaðurinn greiddi klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels haustið 2016 fyrir að þegja um samband þeirra Trumps.
Giuliani gekk í síðustu viku til liðs við lögfræðiteymi Trumps. Hann sagði í viðtali á Fox sjónvarpsstöðinni að endurgreiðslan hafi farið fram gegnum lögmannsstofu, hún hafi ekki komið úr kosningasjóði forsetans og sé því ekki brot á kosningalögum.
Trump hafði sagt áður að hann vissi ekkert um greiðsluna, en Giuliani viðurkenndi að Trump hefði vitað um fyrirkomulagið.
Giuliani sagði í viðtali við Fox News í gær að greiðslan hafi farið í gegnum lögmannsstofu og Trump síðan endurgreitt stofunni. Endurgreiðslan hafi verið gerð á nokkurra mánaða tímabili. Ekkert væri ólöglegt við þetta enda ekki um greiðslu úr kosningasjóði Trumps að ræða.
Michael Avenatti lögmaður Daniels sagði í gær að þetta sýndi að Trump hefði logið að þjóðinni mánuðum saman.