Margt mun bera á góma í sunnudagsþætti Hringbrautar í fyrramálið. Meðal annars verður rætt um forsetakosningarnar hér heima sem og í Bandaríkjunum.
Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðiprófessor og forseti hugvísindasviðs Háskóla Íslands, er einkar vel að sér í bandarískum stjórnmálum. Guðmundur bjó þar um árabil og hefur mikinn áhuga á stjórnmálum þar.
Rætt verður við hann um uppgang Dondalds Trump og ekki síst væntanlegan slag hans og Hillary Clinton um embætti forseta Bandaríkjanna.
Segja má að Viðskiptaráð vilji setja nýja búvörusamninginn í pappírstætatarann og að byrjað verði upp á nýtt. Til að ræða það verða í þættinum Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. Þeir eru alls ekki sammála.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu, og þingkonan Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir ræða meðal annars um hvers vegna konur starfa skemur í stjórnmálum en karlar.
Að endingu kemur Þorsteinn Pálsson sem talar um komandi þingkosningar og eins um forsetakosningarnar síðar í þessum mánuði.
Fjörugur og fjölbreyttur þáttur á dagskrá sjónvarps sem og útvarps Hringbrautar milli klukkan 10 og 12 í fyrramálið.
Sigurjón M. Egilsson stýrir þættinum.