Donald J Trump forseti Bandaríkjanna efnir kosningaloforð sitt um að segja Bandaríkin frá Parísarsáttmálanum um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum.
Þessi ákörðun forsetans á ekki að koma neinum á óvart sem þekkir til stefnumála forstans en kjarni allra stefnumála Donal J Trump er slagorðið \"America first!\" eða \"Ameríka í öndvegi!\"
Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum benda á að ekki sér einhugur um Parísarsáttmálann innan stuðningsmannahóps forsetans. Rex tillerson utanríkkisráðherra ráðlagði forsetanum að hrófla ekki við sáttmálanum. Dóttir forsetans Ivanka Trump gaf forsetanum sömu ráð.
Þetta eru stór tíðindi því fjölmiðlar hafa lengi staðhæft að Ivanka Trump hafi mjög mikil áhrif á allar gerðir og ákvarðanir föður síns. Hún er þó með öllu áhrifalaus í þessu mikilvæga máli. Þetta kallar á endurmat á hennar meintu valdastöðu í Hvíta húsinu.
Stjórnmálaskýrendur segja það tíðindi að forseti Bandaríkjanna sé hvattur til þess af málmetandi fólki að ganga á bak orða sinna með því að efna ekki gefið kosningaloforð um að segja Bandaríkin frá Parísarsáttmálanum.
Það eru nokkur tíðindi segja stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum að lýðræðislega kjörnir ríkisoddvitar í Evrópu hvetji forseta Bandaríkjanna til að svíkja gefið kosningaloforð.
rtá
Nánar www.voanews.com