Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að Alþingi hafi verið heimilt að setja lög á verkföll BHM og FÍH. BHM hafði áður talið að lögin væru skýrt brot á stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður Bandalags háskólamanna sagði í samtali við Vísi.is að dómurinn hafi ekki komið á óvart, en að hann hafi óneitanlega verið mikil vonbrigði. Því komi vel til greina að félagið muni áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Enn fremur sagði Þórunn að ekki væri útilokað að farið yrði með málið út fyrir landsteinana.
Alþingi setti lög á verkfallsaðgerðir BHM og FHÍ þann 11. júní síðastliðinn. Í kjölfarið var gerðardómur skipaður sem hefur til 15. ágúst til kveða upp úrskurð sinn í kjaradeilunni. Verði dómnum áfrýjað til Hæstaréttar verður að teljast ólíklegt að niðurstaða náist í málið áður en frestur gerðardóms rennur upp.