Dómur yfir val lýðssyni þyngdur úr sjö í fjórtán ára fangelsi

Landsréttur dæmdi í dag Val Lýðsson í fjórtán ára fangelsi fyrir að hafa orðið bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, að bana þann 31. mars á síðasta ári. Í september síðastliðnum var Valur dæmdur í sjö ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða Ragnars. Í dómi Landsrétts er Valur dæmdur fyrir manndráp af ásetningi. Vísir.is greinir frá.

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari hafði farið fram á sextán ára fangelsi yfir Ragnari við aðalmeðferð málsins í héraði. Helgi Magnús Gunnarsson, sem flutti málið í Landsrétti, krafðist þyngingar á refsingu Vals þegar málið var flutt á dögunum.

Við meðferð málsins fyrir Landsrétti kaus Valur kaus að tjá sig ekki. Þegar málið var til meðferðar í héraðsdómi bar hann við minnisleysi en neitaði þó að hafa banað bróður sínum af ásetningi.

Á báðum dómstigum lýsti Sebastian Kuntz réttarmeinafræðingur því hvernig ofsafengin árás á Ragnar hefði leitt til fjölmargra áverka á bæði andliti Ragnars og höfði. Kuntz taldi ljós að einhver klæddur í sokka hefði traðkað á höfði Ragnars á meðan hann hafi legið á gólfinu.