Dómur og fangelsi gamla fólksins

Ég er að velta fyrir mér hvernig ég fer að því að framfleyta mér á fáeinum þúsundum króna á viku; segjum kannski átta þúsund.

Viku eftir viku. Mánuð eftir mánuð. Ár eftir ár.

Já, átta þúsund.

Blessunarlega væri ég búinn að borga skuldir, rafmagn og hita, en eftir stæðu sumsé þessir átta þúsund kallar.

Og látum okkur sjá; jú, núðlur koma upp í hugann, hrísgrjón og kannski brauð, en varla viðbit eða álegg svo nokkru nemi, helst aldrei kjöt eða fiskur, en þó kannski einu sinni í viku. Og grænmeti, maður lifandi, kílóverðið þar á bænum er náttúrlega bara fyrir efnafólk.

Mikið gæfi ég fyrir það að þurfa ekki að kaupa lyf á þessum kjörum, en jú líklega færi þriðjungur upphæðarinnar í einhver nauðsynleg lyf vegna gigtar og þráláts verkjar fyrir brjósti, kannski líka magalyf. Og þrengist þá enn frekar kosturinn; jú, tökum allt álegg út fyrst lyfin eru lífsnauðsynleg - og gott ef kaffi fer þá ekki að verða mesti munaðurinn, pokinn sem dugar mér vikuna kostar jú nálægt þúsund krónum.

Bara vonandi að enginn eigi afmæli þessa vikuna, eða fermist, guð forði fjárhag mínum frá því, ellegar ég þurfi að fara til tannlæknis, sem er að vísu raunin, en ég reyni að leiða það hjá mér.

Og helst náttúrlega að enginn komi í heimsókn svo hann borði hvorki né drekki frá mér, hvað þá að sá hinn sami vilji fá mig í leikhús eða kvikmyndahús, það náttúrlega gengur ekki ... en vísast get ég þó nurlað fyrir ódýrri pizzu einu sinni í mánuði, með vatnsglasi.

Dægradvölin fer svo að mestu í það sem kostar mig ekki krónu, horfa á Hringbraut, N4, lesa Fréttatímann, Fréttablaðið - skrítið þó að þurfa að borga fyrir RÚV í þessum samanburði, en það er auðvitað önnur saga; ætli ég verði ekki settur inn ef ég geri það ekki?

Sem er einmitt kannski betri kostur en að eldast á Íslandi.

Já, auðvitað, því ekki að fara í alvöru fangelsi upp á frían kost, fremur en að hírast heima hjá sér upp á þessi örmulegu býti sem alltof mörgum gamalmennum á besta aldri á Íslandi er boðið upp á í einu ríkasta allsnægtarlandi jarðarinnar við dagsbrún nýrrar og gáfulegrar aldar.

Því hvurslags dómur er það fyrir svo marga að eldast núna á Íslandi? 

Hvurslags fangelsi er það?