Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra heimsótti Múlalund í tilefni af 60 ára afmæli Múlalundar. Gengið var um vinnustaðinn og fékk forsætisráðherra kynningu á starfseminni fyrr og nú. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Þar segir enn fremur:
Múlalundur hefur ávallt lagt áherslu á að hver og einn fái starf við hæfi og finni kröftum sínum og sköpunargleði farveg. Landsþekktar eru Egla-möppurnar sem finna má víða á íslenskum vinnustöðum en margar aðrar vörur Múlalundar eru landsmönnum að góðu kunnar.
Þá vakti gamall varningur athygli, eins og dömubindi, tvist-teygjur og margs konar töskur. Forsætisráðherra ávarpaði gesti og óskaði Múlalundi hjartanlega til hamingju með afmælið.