Ráðuneytið og stofnanir keypt hugbúnað fyrir 2.5 milljarð: 267 milljónir farið í hugbúnað tengdan schengen

Í svari Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, fráfarandi dómsmálaráðherra, við fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar, um útgjöld og notkun á almennum og sérsmíðuðum hugbúnaði hjá dómsmálaráðuneytinu og undirstofnunum þess kemur í ljós að síðastliðinn áratug hefur ráðuneytið eytt tveimur og hálfum milljarði króna í hugbúnað.

Fyrirspurn Björns Leví hljóðaði svo:

„Hver hafa verið útgjöld ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna hugbúnaðarkaupa frá árinu 2009? Hve háum fjárhæðum var varið til kaupa á sérsmíðuðum kerfum annars vegar og til kaupa á almennum hugbúnaði hins vegar?“

Þá kemur einnig í ljós í svarinu að verið er að nota hugbúnað frá árinu 1995. Einnig kemur í ljós að ríkislögreglustjóri hefur greitt tæpan milljarð í ýmis konar hugbúnað á þessum árum. Þá hefur Landhelgisgæslan greitt tæpar 400 milljónir. Þá hafa 267 milljónir farið í hugbúnað tengdan Schengen.

Í töflu sem var birt í svarinu er að finna kostnað vegna kaupa, notkunar og uppfærslna á hugbúnaði:

\"\"

 

Dómsmálaráðuneytið keypti hugbúnað fyrir 2.5 milljarð – 267 milljónir í hugbúnað tengdan Schengen