Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hefur ákveðið að stíga tímabundið til hliðar í kjölfar úrskurðar Mannréttindadómstóls Evrópu í hinu svokallaða Landsréttarmáli. Hún greindi frá þessu á blaðamannafundi í dómsmálaráðuneytinu rétt í þessu.
„Ég hef ákveðið að stíga til hliðar til þess að skapa vinnufrið,“ sagði Sigríður meðal annars á blaðamannafundinum.
Sigríður sagði að persóna hennar kunni að trufla þær ákvarðarnir sem mögulega þurfi að taka í málinu. Þrátt fyrir að hún kunni að vera ósammála dómnum þá sé henni annt um að ekki sé grafið undan trúverðugleika íslenskra dómstóla. Hún muni ekki láta það átölulaust að dómstólar verði notaðir í pólitískum tilgangi. Af þessum sökum hafi hún ákveðið að stíga til hliðar næstu vikurnar.
Sigríður segist hafa margt um málið að segja en telur að betur fari á því að hún segi ekki frá því á meðan hún er í embætti. Hún leggur til að dómnum verði skotið til yfirréttar í Strassborg en telur að á meðan þessu máli vindi fram sé æskilegt að annar en hún verði í forsvari.
Fréttamaður RÚV benti henni á að mál sem þessi gætu tekið mun lengri tíma en nokkrar vikur, jafnvel ár eða lengur. Aðspurð um hvort hún hyggist taka sér leyfi allan þann tíma sem þetta mál verði til skoðunar sagði Sigríður það vera ætlun hennar.
Brotið gegn mannréttindasáttmála Evrópu
MDE komst að þeirri niðurstöðu að skipun Sigríðar á fjórum dómurum við Landsrétt hafi brotið gegn 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu. Íslenska ríkið væri því bótaskylt í máli sem Guðmundur Andri Ástráðsson höfðaði gegn því og fór með fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.
Ástráður Haraldsson, Jóhannes Rúnar Jóhannsson, Jón Höskuldsson og Eiríkur Jónsson, voru á lista hæfnisnefndar yfir hæfustu umsækjendur vegna skipan dómara við Landsrétt en voru hvergi sjáanlegir á lista Sigríðar þegar kom að skipan 15 dómara við Landsrétt. Í þeirra stað skipaði Sigríður þau Arnfríði Einarsdóttur, Ásmund Helgason, Jón Finnbjörnsson og Ragnheiði Bragadóttur sem dómara.
Guðmundur Andri hafði verið dæmdur í 17 mánaða fangelsi í Landsrétti fyrir ýmis brot. Honum þótti Arnfríður Einarsdóttir, sem Sigríður skipaði sem dómara við Landsrétt, vera vanhæf þar sem hún hafi ekki verið á meðal fimmtán hæfustu umsækjenda á lista hæfnisnefndar. Guðmundur Andri hafi því ekki hlotið réttláta málsmeðferð, en 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu fjallar um rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. MDE féllst á þessi málsrök.
Kallað eftir afsögn
Í kjölfar úrskurðarins hafa margir kallað eftir því að Sigríður segði alfarið af sér, þar á meðal þingflokkur Pírata. Þá var boðað til mótmæla við Austurvöll þar sem afsagnar hennar var sömuleiðis krafist.
Aðrir þingmenn tóku ekki jafn djúpt í árinni en sögðust búast við því að Sigríður segði af sér, þeirra á meðal Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, taldi þó enga ástæðu fyrir Sigríði að segja af sér, þar sem dómur MDE breytti engu um stöðu hennar.