Dóms­mála­ráð­herra rifjaði upp gamla takta á hesta­móti

Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, birti færslu á Face­book í dag þar sem hún sagði frá því að hún hefði hlotið 5. sæti í kvenna­flokki á hesta­móti.

Ás­laug Arna hefur alla tíð verið mikil hesta­kona og keppti hún á hestinum sínum Októ­ber frá Odd­hóli.

Faðir hennar Sigur­björn Magnús­son, lög­maður hjá Juris, keppti einnig á mótinu. Hann gerði betur til og hreppti tvö verð­laun, 2. sæti og glæsi­legasta par mótsins, en Sigur­björn keppti á hestinum Óskari frá Austur­koti.

Sjá má færslu Ás­laugar Örnu hér að neðan:

Gleðilegt sumar! ✨ Ég rifjaði upp gamla takta í dag og keppti á hestamóti í Fáki. Nældi mér í 5. sæti í kvennaflokki á...

Posted by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir on Thursday, April 22, 2021