Bjarni yfirvegaður, sigmundur klókur

Ólíku er saman að jafna, frammistöðu Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á stólu forsætisráðherra, en þar passar sá fyrrnefndi sig á að taka ekki litlu slaginu og móðgast eilíflega á pressunni, ólíkt fyrirrennara sínum. Þáttinn er nú hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar.

Þetta er mat þeirra Stefáns Einars Stefánssonar, aðstoðarfréttastjóra ViðskiptaMoggans og Þorbjörns Þórðarsonar, fréttamanns og leiðarahöfundar Fréttablaðsins, en þeir eru gestir Sigmundar Ernis í Ritstjóraþætti vikunnar. Og hvað þann síðarefnda varðar, altso Sigmund Davíð, segja þeir það vera klókt hjá föllnum foringja að stofna málefnafélag sem færi honum kærkominn vettvang til að láta í sér heyra og fjölgi möguleikum hans til á að ná aftur fyrri pólitískum styrk.

Þeir ræða einnig bobba Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, en segja hana hafa undirbúið sig af kostgæfni og meta það svo að hún hafi staðist prófið í inngripi sínu í Landsréttarmálinu; þar byggi hún breytt val sitt á dómendum á nýju millidómsstigi á góðum og gildum rökum.

Brothættur efnahagurinn er einnig til tals, þar á meðal mikilvægi þess að almenningur njóti sterkrar krónu eftir að hafa liðið fyrir veika krónu svo árum skipti eftir hrun; í þeim efnum sé ekki sanngjarnt að útflutningsgreinarnar einar njóti þess sveiflukennda gjaldmiðils sem krónan er.

Og heyra menn viðvörunarbjöllunum? Já, Stefán er ekki frá því, ekki síst á bílamarkaði þar sem fólk virðist á nýjaleik byrjað að fara fram úr eigin efnahag.

Og spurt er; er fyrirframgreiðsla formanna ÖBÍ og Neytó stórmál eða smámál. Svar fæst við því í þættinum. Og, er nafnbreyting Flugfélags Íslands í Air Iceland Connect eðlileg eða asnaleg? Þar stendur heldur ekki á svari.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.