Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra birti mynd af sér á Instagram Story grímulausri í klippingu. Einn hársnyrtir gagnrýndi þessa framgöngu Áslaugar á sínum Instagram-reikningi og skrifaði:
„Núna er ég mjög forvitin, ég þarf að vera með grímu allan daginn í minni vinnu (hársnyrtir) þar sem ekki er hægt að halda meters fjarlægð. Gildi þessi regla bara um suma?“
Áslaug segist hafa gleymt sér þegar hún fór í klippingu á mánudag án þess að nota grímu. Í svari við fyrirspurn Vísis segir dómsmálaráðherra að henni þyki leiðinlegt að hafa gleymt sér með þessum hætti og það sé ekki til fyrirmyndar.
„Ég sat þarna með kaffibolla í klippingu hjá vinkonu minni sem ég á oft grímulaus samskipti við,“ segir hún.
Þá segir Áslaug að umrædd vinkona sé bæði búin að smitast af Covid og fá bólusetningu. Vinkonan er einnig grímulaus á umræddri mynd sem greinilega er tekin á hársnyrtistofu. Áslaug segist ekki hafa gert kröfu um að hún bæri grímu vegna þess að hún væri bólusett og búin að fá Covid.
Ljóst er að margir hársnyrtar eru orðnir þreyttir á að bera grímu við sína vinnu. Meðal þeirra er Egill Einarsson sem skilur ekkert í því að þurfa að vera með grímu allan daginn en fara svo eftir vinnu á barinn, í Bónus og ræktina þar sem enginn þurfi að vera með grímu.
„Ég er ekki skurðlæknir. Ég er hársnyrtir. Hvaða leikrit er þetta?“ spyr Egill á Twitter.
Ég stend allan daginn með grímu i andlitinu fer svo eftir vinnu á barinn grímulaus ásamt 200 öðrum i litlu rými, fer grímulaus i Bónus og ræktina.
— Egill Einarsson (@einarsson_egill) September 3, 2021
Nei ég er ekki skurðlæknir. Ég er hársnyrtir.
Hvaða leikrit er þetta?