Dómmálaráherra íhugi stöðu sína

Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra verður að vega og meta mjög alvar­lega hvort henni sé stætt að sitja áfram í emb­ætti ef nið­ur­staða dóm­stóla verður sú að hún hafi beitt ómál­efna­legum sjón­ar­miðum við til­nefn­ingu dóm­ara í Lands­rétt.  Þetta segir Jón Stein­dór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum á Hring­braut þar sem skipan dóm­ara í Lands­rétt verður til umfjöll­un­ar. Fyrirhuguð eru dómsmál vegna gjörða ráðherra.

Þátt­ur­inn verður frum­sýndur klukkan 21:30 í kvöld. 

Dóm­nefnd hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að 15 af 33 umsækj­endum væru hæf­astir í þau 15 emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem í boði eru. Sig­ríður ákvað að breyta röðun list­ans með þeim hætti að fjórir sem dóm­nefnd til­nefndi hurfu af honum og fjórum öðrum var bætt við. Hún rök­studdi þessa ákvörðun sína með því að hún vildi gera dóm­ara­reynslu umsækj­enda hærra undir höfði. Stjórn­ar­and­staðan taldi að ráð­herr­ann hefði ekki rök­stutt breyt­ing­arnar sínar nægi­lega vel og vildi að ákvörðun í mál­inu yrði frestað þannig að hægt yrði að vinna það bet­ur. Var það meðal ann­ars gert vegna harðrar gagn­rýni frá lög­mönnum sem skil­uðu umsögnum inn til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar og vegna þess að rök­stuðn­ing­ur­inn gekk ekki upp ef hann miðað við stiga­gjöf dóm­nefndar fyrir dóm­ara­reynslu ein­vörð­ung­u. 

Málið var hins vegar sam­þykkt með atkvæðum stjórn­ar­liða ein­vörð­ungu. Einn þeirra umsækj­enda sem var fjar­lægður af list­an­um, Ást­ráður Har­alds­son, hefur þegar til­kynnt að hann muni stefna íslenska rík­inu og ráð­herr­anum sjálfum vegna máls­ins og telur hana hafa brotið lög. Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem einnig var fjar­lægður af list­an­um, hefur einnig sagt að hann íhugi að leita réttar síns.

 

Þátturinn Kjarninn er í umsjón Þórðar Snæs Júlíussonar og Þórunnar Elísabetar Bogadóttur.