Landsréttur mun taka aftur til starfa á mánudaginn 18. mars. Í kjölfar úrskurðar Mannréttindadómstóls Evrópu þriðjudaginn 11. mars um að fjórir dómarar Landsréttar hafi verið ólöglega skipaðir hefur rétturinn ekki verið við störf í vikunni. Þó Landsréttur muni taka aftur til starfa eftir helgi munu dómararnir fjórir ekki taka þátt í dómstörfum að sinni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsrétti en í henni er ekkert gefið upp um hvenær eða hvort þau Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason, Jón Finnbjörnsson og Ragnheiður Bragadóttir muni taka aftur til starfa. Þó er þess getið að Ragnheiður sé í námsleyfi frá 1. janúar til 30. júní 2019.
Landsréttur hefur eins og áður segir störf eftir helgi, með breyttri dagskrá sem verður birt á heimasíðu réttarins. Hinir dómararnir 11 sem sitja sem dómarar við Landsrétt munu sinna hefðbundnum dómstörfum réttarins.