Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, bendir á áhugaverða staðreynd varðandi símakosninguna sem réði úrslitum í Söngvakeppni sjónvarpsins um helgina.
Líkt og flestir vita er símakosningunni skipt í tvennt. Fyrst er kosið á milli allra laganna sem taka þátt í úrslitakeppninni, og síðan keppa tvö lög í svokölluðu einvígi. Því eiga sér stað tvær símakosningar.
Viktor bendir á að síðustu fimm ár hafi sigurlagið í fyrri umferðinni fengið talsvert fleiri atkvæði í einvíginu, og á það bæði við hvort sem lagið vann eða ekki. Þetta hafi hins vegar ekki gerst um síðastliðna helgi.
„Reykjavíkurdætur fengu 2850 *færri* atkvæði í einvíginu heldur en í fyrri umferð í Söngvakeppninni á laugardaginn og alls voru greidd 19.381 færri atkvæði í einvíginu heldur en í fyrri umferð... þetta er mjög óvenjulegt miðað við síðustu ár:
2020: Sigurlagið í fyrri umferð (Daði) fékk 22.284 *fleiri* atkvæði í einvíginu en í fyrri umferð, alls voru 10.749 *fleiri* atkvæði greidd
2019: Sigurlagið í fyrri (Hatari) fékk 14.575 fleiri atkvæði í einvíginu, alls 11.304 fleiri atkvæði greidd
2018: Sigurlagið í fyrri (Dagur) fékk 14.297 fleiri atkvæði í einvíginu (en tapaði samt), 7248 færri atkvæði greidd þar í heild
2017: Sigurlagið í fyrri (Svala) fékk 34.312 fleiri atkvæði í einvíginu, 11.744 fleiri atkvæði greidd í heild.
2016: Sigurlagið í fyrri (Alda Dís) fékk 13.264 fleiri atkvæði í einvíginu (en tapaði samt) og 8757 fleiri atkvæði voru greidd í heild.
Sem sagt amk. í síðustu fimm söngvakeppnum á undan þessari (ég leitaði ekki lengra aftur) fékk sigurlagið í fyrri umferð miklu fleiri atkvæði í einvíginu, hvort sem það vann eða ekki, og í öllum nema einni (2018) voru mun fleiri atkvæði greidd í heild þar. Hvað gerðist þá í ár?“
Þetta skrifar Viktor sem segist þó ekki telja að samsæri eða svindl hafi verið í gangi, heldur verði þetta að teljast óvenjulegt.
„Ath. að ég er ekki að gefa í skyn að það hafi verið eitthvað samsæri eða svindl í gangi - og alls ekki að gera lítið úr sigurframlaginu eða þeim sem að því standa - en þetta virkar samt mjög óvenjulegt.“ skrifar Viktor.
Að lokum veltir hann því fyrir sér hvað hafi gerst, og hvað megi betur fara. Hann stingur upp á netkosningu, og þá mætti vera netsamband í sjálfri höllinni.
„Voru Reykjavíkurdætur svona rosalega pólaríserandi - og áhuginn á einvíginu samhliða því mun minni en áhuginn á fyrri umferð? Hljómar skrítið fyrir mér. Kannski er eitthvað sem þarf að athuga varðandi fyrirkomulag kosningarinnar, t.d. það hvort þau sem eru með áskrift geti kosið með öðrum hætti eða að almennt sé líka hægt að kjósa á netinu.
Og svo má Rúv endilega reyna að redda netsambandi í höllina næst! Ég lenti amk. í því að inneignin mín kláraðist fyrir einvígið og ég gat ekki fyllt á hana af því það var ekkert netsamband á staðnum... grunar að fleiri gætu hafa lent í því.“