Vefur íslenska fyrirtækisins Dohop hefur verið tilnefndur „Besti flugleitarvefur heims,“ af World Travel Awards. Dohop vann verðlaunin 2014 og tilnefningin núna markar fjórða árið í röð sem fyrirtækið er tilnefnt. Rætt verður við Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóra Dohop í þættinum Ferðalagið í kvöld, í húsakynnum þessa farsæla nýsköpunarfyrirtækis sem brátt bætir verulega við þjónustu sína.
Tómar R. Einarsson, tónlistarmaður hefur farið oftar til Kúbu en flestir landar hans og þekki vel land og þjóð. Hann segir Sigmundi Erni ferðasögur frá landinu. Eyjólfur Kristjánsson eða bara Eyfi segir frá “borginni sinni” sem er New York. Eyfi hefur farið til borgarinnar sem aldrei sefur um fimmtíu sinnum, nánast jafn oft og hann hefur haldið upp á afmælið sitt.
Ferðafréttir verða á sínum stað og rætt verður um Starfsmannasvindl í veitinga og gistiheimilageiranum. Eftirlit Matís er mikið með veitinga og gististöðum. Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, eftirlitsfulltrúi MATVÍS og Níels Olgeirsson frá sömu samtökum mæta í þáttinn sem hefst kl.21:30 í kvöld, fimmtudag.