Disney-sýning til akureyrar

 

 

Síðastliðið ár hefur tónlistarkonan Greta Salóme dvalið í Bandaríkjunum þar sem hún hefur haldið tónleikasýningu fyrir gesti Disney-samsteypunnar á skemmtiferðaskipum þeirra. Sýningin var unnin af Gretu Salóme og naut hún aðstoðar leikstjóra, hönnuða og dansara frá Disney. Sýningin hefur hlotið einróma lof fyrir fjölbreytni og skemmtanagildi þar sem fjölmargir tónlistarstílar skarast og áheyrendur sjá fjölmargar hliðar tónlistarkonunnar.

Á sýningunni fléttar Greta Salóme saman bakgrunni sínum sem klassískur fiðluleikari, tónskáld og söngkona og leikur tæknilega krefjandi verk en í nýjum útfærslum. Á sýningunni má heyra allt frá háklassískum verkum yfir í eldhröð lög með fiðlu og hrynsveit og töfrandi tónsmíðar þar sem Greta syngur. Einnir má heyra Disney-lög þar sem Greta Salóme syngur og spilar og ber þar hæst að nefna Frozen-svítuna. Þar blandast saman árstíðirnar eftir Vivaldi, lög úr Frozen kvikmyndinni og svo íslensk stef eftir Gretu. Upptökur á þessu verki og fleirum voru gerðar með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í mars fyrr á árinu og hefur Greta notað þessar upptökur í sýninguna sína hjá Disney.  Það má því segja að hljómsveitin hafi fylgt henni í verkefninu frá byrjun.

Í tilkynningu frá menningarhúsinu Hofi segir að í kjölfarið á upptökunum í mars hafi kviknað sú hugmynd að koma með sýninguna í Hof og flytja þessi verk þar. Sú hugmynd hefur þróast og stækkað í tónleikasýninguna FROST sem verður haldin þann 17. janúar nk.

Með Gretu Salóme verður Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, hrynsveit, stúlknakór, bakraddir og dansarar, als 80 manns á sviðinu, Verður öllum fimm og sex ára gömlum börnum boðið á sýningu fyrr um daginn.