Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríksiráðherra og formaður Samfylkingarinnar segir sigur Eyþórs Arnalds í leiðtigakjöri íhaldsins í gær auka líkur á því að Guðlaugur Þór Þórrðarson, utanríkisráðherra verði næsti varaformaður Sjálfstæðisiflokksins.
Össur skrifar í gærkvöld: \"Guðlaugur Þór er sterkasti maðurinn í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Hann studdi Eyþór Arnalds sem í kvöld malaði leiðtogakjörið einsog spáð var hér á síðunni. Svo kemur landsfundur í mars. Þá mun Eyþór endurgjalda Guðlaugi Þór og koma með sitt lið til stuðnings við hann í slagnum um varaformennsku. Um það var díllinn. Eyþór mun örugglega gera gott mót fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kosningum til borgarstjórnar í vor. Hann mun hins vegar fljótt finna það á sínu skinni að hlutskipti leiðtoga minnihluta í Reykjavík er u.þ.b. ömurlegasta hlutskipti sem hægt er að hugsa sér í stjórnmálum heimsins (spyrjið Halldór Halldórsson). Í næstu þingkosningum mun Eyþór því svissa yfir í landsmálin – og fara í prófkjör um sæti á þinglista Sjálfstæðisflokksins. Í Reykjavík. Sá sem sigrar í því prófkjöri verður líklega eftirmaður Bjarna Benediktssonar sem formaður þegar hann hættir í fyllingu tímans. Hvor halda menn að sigri þá? Eyþór er “darling” Moggans og ritstjóranna beggja enda einn af eigendum málgagnsins. Guðlaugur Þór er hvorki efstur á vinsældalista Davíðs né Bjarna. Kristalskúlan á þessu heimili telur hugsanlegt að Guðlaugur Þór muni iðrast dílsins sem átti stóran þátt í sigri Eyþórs í kvöld.\"