Dill á toppi veitingahúsanna

Veitingahúsið DILL Restaurant hefur verið tilnefnt til hinna virtu hönnunarverðlauna Restaurant & Bar Design Awards sem tekur til hönnunar, innréttingar, lýsingar og heildarupplifunar viðskiptavina en ekki um mat eða drykki.   

Þetta er í sjöunda skiptið sem þessi verðlaun verða veitt og verður verðlaunaafhendingin í London 1. október næstkomandi.   Meðal dómara eru Tony Chambers ritstjóri hins virta tímarits Wallpaper.

Að sögn staðarhalfdara á DILL eru verðlaunin mjög virt í sínum geira og fylgir því viss gæðastimpill fyrir þau tilnefndu fyrirtæki að komast á listann.

Þeir segja þetta vera mikla viðurkenningu fyrir DILL sem er til húsa að Hverfisgötu 12 í Reykjavík, en á sama stað má finna veitingarstaðina Hverfisgötu 12 og Mikkeller & Friends Reykjavík.    

Hönnuður DILL Restaurant er Hálfdán Pedersen og hefur hann einnig hannað innréttingar á veitingarstaðnum að Hverfisgötu 12, Snaps, Kex Hostel, Geysi og Mikkeller & Friends Reykjavík.  Hálfdán er leikmyndahönnuður og hefur hann hannað leikmyndir fyrir kvikmyndir á borð við The Good Heart, Fúsa og París Norðursins.