Eins og allir landsmenn vita var það Diljá sem bar sigur úr bítum í söngvakeppninni í gær.
En það vakti eflaust furðu margra í gær þegar komið var að einvígi hennar og Langa Sela og Skuggana að vitlaust númer var sýnt á skjánum.
Því nafn og númer Siggu Ózkar var það sem birtist þrátt fyrir að hennar lag hefði ekki komist í einvígið.
Þetta kom þó ekki að sök þar sem Diljá sigraði á endanum en hefði vissulega getað verið svekkjandi og valdið miklu fjaðrafoki hefði Skuggunum tekist að hreppa sigurinn.
🇮🇸 Some of you may have noticed but the wrong number was shown for Diljá in some of the recaps. This is get messy. #Söngvakeppnin https://t.co/ilv5UPn6yw
— Eurovoix Note (@EurovoixNote) March 4, 2023