Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir stöðu heilbrigðisþjónustu á Íslandi er varðar bið ekki eins góða og best verði á kosið.
Þetta kemur fram í nýrri aðsendri grein Diljár á vef Vísis.
Að sögn Diljár Mistar þyngdist róður heilbrigðisstofnana verulega vegna skertrar þjónustu í heimsfaraldrinum. „Það er hins vegar nánast sama hvar borið er niður. Það er margra mánaða bið eftir tímum hjá sérfræðilæknum og áralöng bið eftir fjölmörgum aðgerðum með tilheyrandi lífsgæðaskerðingu,“ segir Diljá Mist og bætir við að meðal annars af þessum sökum sé mikilvægt að utanumhald upplýsinga sé gott, rýnt sé í vandann og hvernig eigi að bregðast við honum.
„Heilbrigðisráðherra hefur vissulega beint sjónum að forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu og lagt áherslu á styttingu biðtíma. Það er hins vegar ekki nóg að plástra kerfi sem ekki virkar. Það er því löngu orðið tímabært að nýta fjölbreyttara rekstrarform í heilbrigðiskerfinu til að bæta aðgengi og stytta biðlista,“ segir Diljá Mist. Það hafi gefist vel við rekstur heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu.
„Kannanir sýna að ánægja og traust notenda einkarekinna heilsugæslustöðva mælist meira en þar sem þær sem eru reknar af hinu opinbera.“
Diljá Mist hvetur heilbrigðisráðherra til að hafa áfram opinn hug við að bæta heilbrigðiskerfið og þjónustu við sjúklinga.
„Þeir geta eðlilega ekki sætt sig við skert lífsgæði meðan þeir bíða eftir heilbrigðisþjónustu,“ segir Diljá Mist að lokum.
Hægt er að lesa pistil Diljáar Mistar í heild sinni hér.