Sjónvarpsþátturinn Allt er nú til hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld eftir hlé. Díana Íris Guðmundsdóttir stýrir dagskrárgerðinni en um ræðir neytendaþátt.
Í þættinum fer Díana í verslunarleiðangur fyrir heimilið: Hún skoðar það sem er nýtt, hagstætt, sniðugt fyrir heimili eða fjölskyldur, fær hagnýt ráð og spjallar við fulltrúa verslana og þjónustuaðila.
\"Við leggjum okkur fram um að hafa þáttinn léttan og skemmtilegan en fyrst og fremst þó upplýsandi fyrir neytendur,\" segir Díana sem er nýr þáttastjórnandi á Hringbraut.
Allt er nú til er á dagskrá í kvöld kl 20:45 og verður framvegis á miðvikudagskvöldum á sama tíma.