Demantanáma hjá perlunni (aprílgabb)

Starfsmenn Reykjavíkurborgar fundu mikið magn demanta í jörðu í gærkvöld. Rafmagnskapall hafði fyrr um daginn farið í sundur vegna mistaka gröfumanns. Þurfti að kalla út teymi viðgerðarmanna til hjálpar og upp úr klukkan 21 í gærkvöld rak árvökull starfsmaður Reykjavíkurborgar, Friðbjörn Bollason, augun í safn glitrandi steina í skurðinum.
Góssið hefur nú verið greint. Segir Stefán Þorláksson, gullsmiður frá Hala, engum vafa undirorpið að um sé að ræða demanta og að líkindum forna. Samkvæmt heimildum Hringbrautar er áætlað virði demantanna um 200 milljónir króna.
Vísbendingar eru samkvæmt heimildum Hringbrautar um að töluvert meira magn sé að líkindum að finna í hlíðinni af demöntum. Eru nokkur dæmi eftir því sem fram kom í Útvarpi Sögu í  morgun að borgarbúar hafi mætt með eigin skóflur og hafi grafið í kringum afgirt fundarsvæðið. Mun hafa sést til Árna Johnsen með stóra skóflu í grennd við Perluna.

Í Öldinni okkar kemur fram að danskur maður, Oyvind Trumpe, hafi rænt kaupahéðna í Lundúnum árið 1904. Trumpe hafi flúið með fenginn hingað upp á drekkhlöðnu skipi og verið heppinn með byr. Hann hafi grafið mikið magn eðalsteina í jörðu einhvers staðar í borginni, einkum demanta. Hann hvarf sporlaust skömmu síðar. Hefur hvorki til hans spurst né eðalsteinanna síðan. Ekki þá fyrr en rafmagnskapallinn fór í sundur í gærkvöld.

Kurl komin til grafar.

Hringbraut náði tali af borgarstjóra, Degi B. Eggertssyni vegna fundarins. Hann segir demantafundinn \"ánægjulega ráðgátu\". Dagur telur engum vafa undirorpið að demantarnir séu eign borgarinnar. Hann telur líklegt að fénu verði varið til að létta undir með rekstri leikskólanna.

Uppfært kl. 17.45: Hringbraut upplýsir (ef vafi gat leikið á) að fréttin er uppspuni frá rótum - enda 1. apríl. Við heitum því að ár muni líða uns við ljúgum aftur upp frétt - takk fyrir að taka þátt í gríninu og afsakið ef einhver hljóp apríl: :)