Flugfélagið Delta Air Lines byrjar að fljúga á ný milli Íslands og Minneapolis næstkomandi föstudag, 24. maí og verður flogið daglega til 3. september. Þetta er þriðja sumarið í röð sem Delta flýgur til Minneapolis/St. Paul. Þar með verða tvær flugferðir á dag í boði með Delta til Bandaríkjanna, en félagið flýgur allt árið til JFK flugvallar í New York.
„Alls býður Delta 5.400 flugsæti á viku milli Íslands og Bandaríkjanna í sumar, þegar eftirspurnin er hvað mest,“ segir Roberto Ioriatti, framkvæmdastjóri Atlantshafsflugs Delta Air Lines. „Við reynum að skera okkur úr með fjölbreyttum þægindum og þjónustu meðan á fluginu stendur til að gera sérhverja ferð að ánægjulegri upplifun, og þeir sem greiða lægstu fargjöldin eru þar ekki undanskildir.“ Bandaríkjamenn eru fjölmennastir erlendra ferðamanna hér á landi. Frá því í mars 2018 til febrúar á þessu ári komu 685.000 þeirra með flugi.
Delta Air Lines er ekki eina flugfélagið sem hefur aukið framboð á flugsætum til Íslands eftir fall WOW, en fjöldi annara flugfélaga hafa tilkynnt nýjar leiðir eða fjölgun á flugum á núverandi leiðum. Einnig eru fjölmörg flugfélög að ræða við Isavia um að fljúga til Keflavíkur.