Deildi á sátt en gerði slíka sjálfur

Sátt var gerð á milli Ríkisútvarpsins og útgerðarfyrirtækisins FiskAra á Vestfjörðum í tíð Páls Magnússonar sem útvarpsstjóra, en hún var gerð vegna þess að í ljós kom að efni fréttarins stóðst ekki sannleikann; orð þess efnis að félagið væri að fara á hausinn reyndust vera úr lausu lofti gripin.

Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá því að Ríkisútvarpið hafi nýverið aflétt trúnaði af þessum sáttagjörningi í samræmi við afléttingu trúnaðar af síðari tíma sátt í máli ríkismiðilsins og Guðmundar Spartakusar Ómassonar á síðasta ári, en þar féllst RÚV á að borga téðum Guðmundi 2,5 milljónir í miskabætur vegna rangs fréttaflutings um hann, svo ljúka mætti meiðyrðamáli utan dómstóla.

Í blaðinu er sagt frá því að Páll, sem nú er þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafi gagnrýnt RÚV fyrir linkind í máli Guðmundar Spartakusar, en þar hafi hann furðað sig á því að stofnunin væri að kaupa sig frá því að biðjast afsökunar eða leiðrétta frétt.

Og nú er sumsé komið í ljós, eins og fram kemur í blaðinu, að Páll gerði nákvæmlega það sama í tíð sinni sem útvarpsstjóri, en sáttin við FiskAra, til að forðast meiðyrðamál á hendur RÚV - og komast þannig hjá afsökun og fyrirgefningu, var gerð árið 2008, eða fyrir réttum áratug.