Á tíunda tímanum í morgun var málefni Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra til umræðu á ríkisstjórnarfundi en í gær samþykkti Landssamband lögreglumanna vantraust á honum. Átta af níu lögreglustjórum landsins sögðust ekki bera traust til Haraldar.
Að fundi loknum sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, að málið væri í vinnslu í ráðuneytinu og að niðurstöðu megi vænta innan örfárra vikna. Á meðan situr Haraldur áfram sem ríkislögreglustjóri. Greindi Áslaug Arna frá því að fyrst og fremst þurfi að tryggja að löggæsla í landinu virki þrátt fyrir vantraustsyfirlýsingarnar. Þá vildi Áslaug ekki tjá sig um efni fundar sem hún átti með Haraldi en segist vona að samtalið muni halda áfram.
Í samtali við Fréttablaðið segir Páll Magnússon, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins ástandið innan lögreglunnar óviðunandi. Segir hann Áslaugu hljóta að hafa sínar ástæður fyrir því að Haraldur sitji áfram í stöðu sinni sem ríkislögreglustjóri.
„Ég geri ráð fyrir því að hún sé að bregðast við stöðunni með öðrum hætti en þeim sem fæli í sér að ríkislögreglustjóri víki núna því við svo búið má ekki standa. Það er ekki hægt að horfa aðgerðarlaus þegar allt logar í illdeilum innan lögreglunnar. Þetta er til þess fallið að rýra traust almennings á lögreglunni, sem er ótækt og óviðunandi,“ segir Páll í samtali við Fréttablaðið.
Páll segir lífsnauðsynlegt að lögreglan njóti trausts og gerir hann ráð fyrir því að dómsmálaráðherra grípi inn í aðstæður með öðrum hætti.
„Það var ákveðin eðlisbreyting á þessari deilu í gær þegar skyndilega fyrir liggur vantraust á ríkislögreglustjóra frá öllum nema einum lögreglustjórum í landinu og lögreglumönnum. Þetta er ástand sem er óviðunandi og hlýtur að vera brugðist við strax en ég ætla ekki að hafa fyrir fram skoðanir á því hvað eigi að felast í þeim viðbrögðum.“
Fréttablaðið greindi einnig frá því að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar Alþingis telji að dómsmálaráðherra sé ekki að taka nægt tillit til vantraustayfirlýsinganna og þá segist hún ekki sjá hvernig skipulagsbreytingar einar og sér geti skapað vinnufrið innan lögreglunnar.
„Hún talar um að lögreglan verði að halda áfram að starfa þrátt fyrir vantraustsyfirlýsingar. Ég fæ ekki séð hvernig skipulagsbreytingar einar og sér eigi að laga það vantraust sem augljóslega er að finna á milli lögreglustjóra í landinu og almennra lögreglumanna til ríkislögreglustjóra. Ég fæ heldur ekki séð að það sé hægt að sitja á höndum sér í nokkrar vikur í viðbót eftir því að einhverjar tillögur um skipulags breytingar komi fram.“
Þórhildur segist hafa viljað sterkari viðbrögð frá dómsmálaráðherra.
„En þess í stað á ráðherra fundi með ríkislögreglustjóra sem hún neitar að upplýsa almenning um, um hvað fjalla.“